PERSÓNUVERNDAR STEFNA
Alver ehf er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem félagið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu Alver ehf kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að viðskiptavinir, samstarfsaðilar og aðrir einstaklingar, séu upplýstir um hvernig félagið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Alver ehf, kt. 700608-4090, Suðurlandsbraut 22, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru félaginu. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til félagsins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið johann@alver.is
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar um hinn skráða, þ.e. upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings, samkvæmt skilgreiningu persónuverndarlaga. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
Um meðferð Alver ehf á persónuupplýsingum fer samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma hér á landi.
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Alver ehf safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi. Markmiðið með upplýsingasöfnun er fyrst og fremst til þess að þjónusta viðskiptavini betur og aðlaga og bæta upplifun þeirra af þjónustu Alver ehf.
Alver ehf safnar einungis persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita viðeigandi þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á að Alver ehf geti ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða veitt þjónustu. Alver ehf nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu og skilmála samninga, nema þegar lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma.
Alver ehf safnar upplýsingum um viðskiptavini sína í tengslum við einstök viðskipti. Þannig safnar Alver ehf m.a. samskiptaupplýsingum viðskiptavina, upplýsingum um þá vöru og/eða þjónustu sem keypt er, t.d. vörunúmer og verð. Gerist viðskiptavinur brotlegur kann að vera unnið með upplýsingar um brot á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins. Þá kunna brot að vera tilkynnt til lögreglu.
Ábendingar og/eða athugasemdir frá viðskiptavinum
Ef einstaklingur sendir inn ábendingu eða kvörtun mun Alver ehf almennt vinna með samskiptaupplýsingar hans, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem hann hefur kosið að koma á framfæri. Upplýsingar eru geymdar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu.
Miðlun persónuupplýsinga
Alver ehf nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar í. Alver ehf miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki, í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins eða á grundvelli lagaskyldu.
Alver ehf áskilur sér rétt til að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki Alver ehf í þeim tilgangi að veita þjónustu sem beðið hefur verið um. Alver ehf deilir upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með félaginu við gæða- og markaðsstarf. Alver ehf afhendir vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerður er við þá samningur þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um einstaklinga öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.
Allir vinnsluaðilar Alver ehf og samstarfsaðilar hafa undirritað viðeigandi trúnaðaryfirlýsingu og vinnslusamning í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. Alver ehf tryggir þannig vernd persónuupplýsinga í samræmi við lög og reglur um persónuvernd eins og þau eru á hverjum tíma. Þar á meðal með mótun öryggisstefnu um meðferð og öryggi persónuupplýsinga og setningu öryggis- og verklagsreglna eins og krafist er í persónuverndarlögum. Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir Alver ehf trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Alver ehf leigir aldrei eða selur persónuupplýsingar um viðskiptavini.
Öryggi gagna
Alver ehf leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta, að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni .
Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra. Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum Öll samskipti við vefþjóna Alver ehf eru dulkóðuð yfir öruggar vefslóðir (HTTPS).
Réttindi þín
Einstaklingur á rétt á og getur óskað eftir að Alver ehf veiti honum upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem félagið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um hann. Þá kann einnig að vera að einstaklingur hafi rétt á að fá afrit af upplýsingunum. Við ákveðnar aðstæður getur einstaklingur farið fram á það við félagið að við sendum upplýsingar, sem hann hefur sjálfur látið okkur í té eða stafa frá honum, beint til þriðja aðila.
Einstaklingur á rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um hann séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað. Vilji einstaklingur ekki láta eyða upplýsingum sínum, t.d. vegna þess að hann þarf á þeim að halda til að verjast kröfu, en vill samt sem áður að þær séu ekki unnar frekar af hálfu félagsins getur hann óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð. Sé vinnsla á persónuupplýsingum einstaklings byggð á lögmætum hagsmunum félagsins á hann einnig rétt á að mótmæla þeirri vinnslu.
Framangreind réttindi einstaklingsins eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög að skylda félagið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur félagið hafnað beiðni hans vegna réttinda félagsins, s.s. á grundvelli hugverkaréttar, eða réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji félagið þau réttindi vega þyngra. Réttindi þín til að mótmæla vinnslu í markaðssetningar tilgangi er þó skilyrðislaus. Einstaklingi verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verðavið beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Einstaklingur getur kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is) ef Alver ehf neitar að afhenda honum ákveðnar upplýsingar eða ef einstaklingur er ósáttur við vinnslu Alver ehf á persónuupplýsingum.
Ef upp koma aðstæður þar sem að félagið getur ekki orðið við beiðni einstaklings mun félagið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.
Vafrakökur (cookies)
"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Alver ehf notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga. Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Alver ehf vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun. Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Alver ehf. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Alver ehf, þar á meðal verslunarkerfið.
Alver ehf notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Alver ehf t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Alver ehf notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur en Alver ehf áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixel. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra. Með því að nota vefverslun Alver ehf samþykkir neytandi að Alver ehf safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum. Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Alver ehf gætu takmarkast við slíkar breytingar.
Breytingar á persónuverndar stefnu
Alver ehf áskilur sér rétt til að aðlaga og breyta persónuverndarstefnu sinni. Um allar breytingar á stefnu okkar munu verða kynntar á síðunni.